"Þekktu rauðu ljósin" - Afhending styrkja
Á Mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna og degi Soroptimista, þann 10. desember, lauk 16 daga átakinu "Þekktu rauðu ljósin". Af því tilefni veitti stjórn Soroptimistasambands Íslands tvo styrki að upphæð 1.5 milljón hvor til Kvennaathvarfsins og Sigurhæða. Styrkirnir eru afrakstur vinnu Soroptimistaklúbbanna 19 sem starfa á Íslandi auk framlags frá Landssambandi Soroptimista. Styrkjunum veittu móttöku þau Hildur Jónsdóttir framkvæmdastýra f.h. Sigurhæða og Árni Mathíasen varaformaður f.h. Kvennaathvarfsins.
Guðrún Lára Magnúsdóttir forseti Soroptimistasambands Íslands flutti ávarp.
Hildur Jónsdóttir framkvæmdastýra Sigurhæða tekur á móti styrk að upphæð 1.5 milljónir.
Árni Mathíasen varaformaður samtaka um Kvennaathvarf tekur á móti styrk að upphæð 1.5 milljónir.
Jóna Th. Viðarsdóttir gjaldkeri afhendir Guðrúnu Láru fráfarandi forseta gjöf frá Landssambandi Soroptimista fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna.
Guðrún Lára Magnúsdóttir fráfarandi forseti og Sigrún Þorgeirsdóttir verðandi forseti Soroptimistasambands Íslands.
Stjórn Soroptimistasambands Íslands árið 2022. Talið frá vinstri: María B. Ingvadóttir 2. varaforseti, Guðrún Lára Magnúsdóttir forseti, Sigríður B. Aadnegard ritari, Kristjana G. Jónsdóttir 1. varaforseti, og Jóna Th. viðarsdóttir gjaldkeri.